Um Balans

Nám og íþróttauppeldi á sér stað í flóknum veruleika þar sem margt smátt getur haft áhrif á árangur.

Balans var stofnað af Daða Rafnssyni, eiganda fyrirtækisins til að halda utan um fræðslu og ráðgjafaverkefni. Daði hefur komið að margvíslegum verkefnum og sankað að sér dýrmætri reynslu og samböndum í íþróttaheiminum. Með auknum umsvifum hafa fleiri bæst í hópinn.

Í námi, íþróttauppeldi og afreksumhverfi er mikill hraði og verkefnin af mörgu tagi. Mikilvægt er að þau sem standa að og taka þátt í íþróttauppeldi og afreksþjálfun geri það á faglegan og ábyrgan hátt sem hefur heilsu og velferð iðkenda að leiðarljósi.