
5C aðferðafræðin hefur verið notuð í íþróttastarfi og kennslu við að kenna markvissa hugarfarsþjálfun fyrir börn og unglinga frá 10 – 19 ára aldri. Balans er umboðsaðili 5C á Íslandi og býður upp á námskeið, fyrirlestra og vinnustofur fyrir íþróttalið, þjálfara, kennara og nemendur.

Heildræn umhverfisnálgun
spyr hvaða þættir í okkar daglega lífi ýta undir árangur. Við bjóðum upp á fyrirlestra fyrir stjórnendur, þjálfara og kennara þar sem velt upp er hvernig við sköpum umhverfi sem hvetur til árangurs? Fyrir þau sem vilja kafa dýpra bjóðum við upp á greiningu á umhverfinu þínu.

Hvernig á ég að tækla erfið mál? Eins dags námskeið um hvernig stjórnendur í íþróttafélögum (yfirþjálfarar, þjálfarar, framkvæmdastjórar, íþrótta og tómstundafulltrúar, barna-og unlingaráð) geta nálgast erfið mál og leitt þau til lykta á sem farsælastan hátt.

Jákvæð upplifun barna og unglinga í íþróttum.
Flestir foreldrar vilja að barnið þeirra eigi jákvæða upplifun í íþróttum. Hún eykur vellíðan og líkurnar á árangri. Stutt námskeið um nálgun foreldra og aðferðir sem þau geta beitt.

Dual Career – að ná jafnvægi milli íþrótta og náms skiptir miklu máli. Ráðgjöf og fyrirlestrar til íþróttafélaga, skóla, kennara og námsráðgjafa um hvernig er farsælast að samræma íþróttir og nám.