Daði Rafnsson
Daði hefur margvíslega reynslu úr íþróttaheiminum og víðar að. Hann er doktorsnemi við Sálfræðideild Háskólans í Reykjavík en rannsókn hans lýtur að markvissri sálrænni færniþjálfun. Hann kennir einnig Eigindlega aðferðafræði við Sálfræðideild og Afreksþjálfun og Hagnýta íþróttasálfræði við Íþróttafræðideild HR.
Hann tók einnig þátt í að stofna Afrekssvið Menntaskólans í Kópavogi sem býður nemendum upp á að samræma íþróttaiðkun og nám. Þar hefur Daði verið fagstjóri frá upphafi en nemendur eru nú á fjórða hundrað, úr yfir tuttugu íþróttagreinum og nærri fimmtíu félögum. Hann hefur sjálfur þjálfað á þriðja þúsund iðkendur í knattspyrnu, frá áttunda flokki upp í meistaraflokk. Hann var yfirþjálfari knattspyrnudeildar Breiðabliks, yfirmaður knattspyrnuþróunar hjá HK og var aðstoðarþjálfari hjá kvennaliði Jiangsu Suning í Kína. Hann hefur um árabil starfað við leikmannaleit (scouting) hjá bandaríska NWSL liðinu Washington Spirit og Kynisca sem á London City í ensku WSL deildinni og OL Lyonnaise í efstu deildinni í Frakklandi. Hann hefur einnig komið að margvíslegri ráðgjöf hjá knattspyrnuliðum á Íslandi og erlendis, en einnig kennt á námskeiðum hjá KSÍ um árabil.

Grímur Gunnarsson
Grímur Gunnarsson er sálfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og hefur unnið sem sálfræðingur Knattspyrnusambands Íslands frá árinu 2020. Þar sinnir hann sálfræðilegri færniþjálfun yngri landsliða og ásamt því að vera sálfræðingur A landsliðs kvenna. Með þeim hefur hann farið á tvenn stórmót árið 2022 og 2025. Meðfram vinnu sinni hjá KSÍ hefur hann unnið með íþróttafólki úr fjölda annarra íþrótta, bæði hvað varðar frammistöðubætingu og við vanda utan íþróttarinnar. Íþrótta- og frammistöðusálfræði er hans aðal sérsvið og hefur Grímur verið fenginn til að halda fyrirlestra og vinnustofur fyrir íþróttafélög og fyrirtæki um allt land við góðan orðstír.
